Kort Vefur

Fréttir

  • Nýjustu fréttir
  • Yfirlit

Börn ræða umhverfismál

28.06.2008

Ástralskur kvikmyndagerðarmaður, á táningsaldri, indverskur strákur sem berst gegn sóun drykkjarvatns og Ameríkani sem stundar endurvinnslu voru meðal þátttakenda sem vöktu athygli á ráðstefnu barna um Umhverfismál sem Umhverfissáætlun Sameinuðu þjóðanna (UNEP) hélt í Noregi 17.-21. júní.

Ástralskur kvikmyndagerðarmaður, á táningsaldri, indverskur strákur sem berst gegn sóun drykkjarvatns og Ameríkani sem stundar endurvinnslu voru meðal þátttakenda sem vöktu athygli á ráðstefnu barna um Umhverfismál sem Umhverfissáætlun Sameinuðu þjóðanna (UNEP) hélt í Noregi 17.-21. júní.

Barnaráðstefna af þessu tagi er haldin annað hvert ár. Að þessu sinni var þemað “Stuðlum að breytingum.” UNEP í samvinnu við Barnahjálp SÞ (UNICEF) sýndi stutt myndbönd sem ungmenni hafa gert og sýna jákvætt framlag til umhverfismála.

Þannig er fylgst með þrettán ára Ástrala sem vinnur að heimildarmyndinni “A Kid´s guide to Climate Change.” Þar ræddi hann við leiðtoga frumbyggja og fjallaði um hvernig vindur og sjávarföll eru virkjuð til rafmagnsframleiðslu.

Einnig er fjallað um fjórtán ára Indverja sem berst gegn sóun vatns og þrettán ára Kamerúna sem gróðursetur tré og jafnaldra hans í Bandaríkjunum sem skipuleggur endurvinnslu.

Tíu til fjórtán ára börn og unglingar frá 100 löndum tóku þátt í ráðstefnunni í Stavangri. Achim Steiner, forstjóri UNEP sagði: “Þessi sjö hundruð börn sem tóku þátt í ráðstefnunni eru gott bæmi um sköpunargleði og kraft barna sem virkja má til að vernda jörðina okkar. Við getum öll lært af þeim.”


Til baka
21.08.09

Náttúrukortið á Menningarnótt

Á Menningarnótt mun Framtíðarlandið standa fyrir sýningu á ljósmyndum...Meira

17.09.08

Umhverfisráðherra opnar Náttúrukortið.

Umhverfisráðherra mun í dag, 17. september, opna Náttúrukortið í...Meira

8.07.08

The Machine Is Deaf

June 17, 1944, the greatest minds in Iceland convened on the banks of "Lake...Meira

30.06.08

Nattura Ringtones

Fantastic atmosphere gripped Reykjavik for the Náttúra Concert this past...Meira

29.06.08

Náttúra Concert A Success

Náttúra, the largest live music event ever held in Iceland, took place...Meira

Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum: Hugsandi Menn