nattura.info
Við viljum fræðast og uppfræða, við viljum tengja okkur við nýja tíma og nýja hugsun, hérlendis og á heimsvísu.
Við viljum vekja áhuga á frumkvöðlastarfi sem er skapað í sátt við náttúruna og okkur sjálf.
Við vekjum athygli á hinni sérstæðu náttúru Íslands og kraftinum sem þessi auðlind veitir okkur og getur veitt kynslóðum framtíðarinnar.
Við viljum hvetja til umræðu meðal almennings um hvaða skref við viljum taka inn í framtíðina.
Þessi nýji vefur opnaði samhliða Nátturu tónleikunum 28.júní í Laugardal, þar sem Ghostigital/Finnbogi Pétursson, Ólöf Arnalds, Sigur Rós og Björk spiluðu.