Kort Vefur




Fljótsdalsstöð

Í Fljótsdalsstöð fer fram raforkuvinnsla Kárahnjúkavirkjunar. Afl stöðvarinnar er 690 MW og er hún öflugasta vatnsaflsstöð landsins. Orkan úr Fljótsdalsstöð fer til álvers Alcoa í Reyðarfirði.

Að Fljótsdalsstöð rennur vatn frá stóru jökulánum Jökulsá á Dal og Jökulsá í Fljótsdal. Einnig eru árnar Kelduá, Grjótá og Sauðá sameinaðar í Hraunaveitu og er vatni frá þeim veitt í Jökulsá í Fljótsdal.
 
Hálslón
Jökulsá á Dal er stífluð við Fremri Kárahnjúk og er þar jafnframt langstærsta stífla Kárahnjúkavirkjunar sem nefnist Kárahnjúkastífla. Stíflan er 700 m löng og 198 m há grjótstífla með steyptri þéttikápu á vatnshliðinni. Kárahnjúkastífla er meðal þeirra stærstu í heiminum af þessari gerð og hæsta grjótstífla í Evrópu með steyptri þéttikápu
 
Austan við Kárahnjúkastíflu er Desjarárstífla og í dalverpi að vestanverðu er Sauðárdalsstífla. Þessar hliðarstíflur eru grjót- og malarstíflur með þéttikjarna úr jökulruðningi. Saman mynda stíflurnar þrjár Hálslón sem er 57 km² að stærð. Vatnshæðin er 625 m y.s. við fullt lón.
 
Í flestum árum fyllist Hálslón síðsumars. Þegar lónið er fullt er vatni veitt um yfirfall Kárahnjúkastíflu þaðan sem það steypist í um 90 m háum fossi niður í Hafrahvammagljúfur.
 
Jökulsárveita og Hraunaveita
Jökulsá á Fljótsdal er stífluð nokkru fyrir neðan Eyjabakkafoss og myndast þar inntakslón sem nefnist Ufsarlón. Í Kelduá er myndað Kelduárlón, um 7 km², þar sem nú er Folavatn.
 
Í Hraunaveitu sameinast vatn frá Kelduá, Grjótá og Sauðá og er því veitt í Jökulsá á Fljótsdal um göng og skurði.


Heimild: af vef Landsvirkjunar

Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum: Hugsandi Menn