Kort Vefur




Ljósafossstöðin er elsta virkjun í Soginu og hófst rekstur hennar árið 1937.

Þá voru settar upp tvær vélasamstæður samtals með 8,8 MW afli. Þriðja vélin var sett upp árið 1944 og er hún 5,5 MW. Virkjað var með því að stífla við útfall Úlfljótsvatns og hækka yfirborð þess um einn metra. Stöðin stendur á árbakkanum austan við fossinn og vatnið er leitt um pípur að hverflum stöðvarinnar og þaðan út í ána neðan fossins.

Afl er 15 MW.

Heimild: af vef Landsvirkjunar

Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum: Hugsandi Menn