Kort Vefur




Þjórsá og Tungnaá voru stíflaðar austan undir Sandafelli um það bil 1 km ofan ármótanna á árunum 1982-1984, löngu áður en hafist var handa við byggingu stöðvarinnar. Frá rótum Sandafells liggur stíflan yfir farveg Þjórsár, austur yfir Sultartanga og farveg Tungnaár og áfram á suðurbakka hennar í átt að Haldi við Tungnaá. Með gerð stíflunnar myndaðist ofan hennar svonefnt Sultartangalón, og þaðan hefur vatni verið veitt um farveg Þjórsár til Búrfellsstöðvar.

Framkvæmdir við byggingu Sultartangastöðvar hófust vorið 1997 og komust á fullt skrið vorið 1998. Fyrri vél Sultartangastöðvar var gangsett seint á árinu 1999 en stöðin var komin í fullan rekstur snemma árs 2000.
Afl er 120 MW.


Heimild: af vef Landsvirkjunar

Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum: Hugsandi Menn