Kort Vefur




Fjarðará á upptök sín að rekja til Heiðarvatns sem er í um 585 m hæð á Fjarðarheiði milli Seyðisfjarðar og Fljótsdalshéraðs. Fjarðará er nær hrein dragá og hana einkenna því miklar rennslissveiflur. Árfarvegur Fjarðarár er fremur þröngur og brattur og fjöldi fallegra fossa eru í ánni. Þeir stærstu eru Gufufoss og Múlafoss sem báðir eru neðarlega í ánni. 

Heimildir:
Hjörleifur Guttormsson. 2005. Austfirðir frá Reyðarfirði til Seyðisfjarðar. Árbók 2005. Ferðafélag Íslands. 304 bls.
Vefur íslenskrar orkuvirkjunar:
www.iov.is

Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum: Hugsandi Menn