Kort Vefur




Hvalá, Ófeigsfirði
Í Ófeigsfirði á Ströndum rennur Hvalá til sjávar. Hvalá á upptök sín á auðnum Ófeigsfjarðarheiðar og rennur vestan af heiðinni í hrikalegum gljúfrum sem nefnast Hvalárgljúfur. Við svokölluð Ármót rennur áin Rjúkandi úr suðri í Hvalá. Hvalá er talin eitt mesta vatnsfall á Vestfjörðum. Áður en göngubrú var byggt yfir ána, þá var hún oft ófær eða illfær í vatnavöxtum.

Hvalárvirkjun í Ófeigsfirði
Virkjun Hvalár í Ófeigsfirði hefur verið til skoðunar hjá Orkubúi Vestfjarða allt frá árinu 1982. Vegna óhagkvæmni hefur lítið verið þrýst á virkjun. Nú í dag er virkjun Hvalár í skoðun hjá fyrirtækinu Alsýn í samstarfi við Vesturverk ehf. Uppsett afl Hvalárvirkjunar er áætlað 37MW og yrði það fengið með miðlun vatnsafls af Ófeigsfjarðarheiði.

Heimildir:
Guðrún Ása Grímsdóttir. 1994. Ystu strandir norðan Djúps. Árbók 1994. Ferðafélag Íslands. 294 bls.
Vestfjarðavefurinn:
www.vestfirdir.is

Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum: Hugsandi Menn