
Uppi á hálsinum er einhver fegursta og stórfenglegasta gígaröð á landinu, og reyndar fleiri en ein. Vestan hennar, nærri norðurbrún Lönguhlíðar, er hæðin Kistufell með stórum og tilkomumiklum dyngjugíg, með storknaðri hrauntjörn. Hraun þekja þarna stór svæði og eru yfirleitt mosagróin, enda úrkoma mikil á fjöllunum og þokur eða skýjahulur tíðar. Þarna er því fjölbreytilegt og sérstætt eldfjallalandslag, óraskað, úfið og villt. Ganga þarf upp Grindaskörð frá Bláfjallavegi (syðri) og suður á fjöllin og niður að jarðhitasvæðinu, eða upp í eldgígalandið. Háspennulínur, jarðýtuvegir, borholur og virkjunarmannvirki myndu þarna valda verulegu raski á landslagi.
Freysteinn Sigurðsson