Kort Vefur

Reykjanes - Eldvörp




Jarðhitasvæðið er í nær miðri Eldvarpa-gígaröðinni, sem er frá sögulegum tíma og teygir sig langa vegu með unga, úfna og undurfagra gíga sína. Jarðhitaummerki á yfirborði voru lítil, aðeins gufutjásur í góðu veðri og smáskellur á hrauninu við gufuaugun. Boraðar hafa verið rannsóknarholur á svæðinu, sem þó ber furðu lítið á. Mikil sjónmengun yrði hins vegar að háspennulínum yfir gígaröðina, eða í nánd við hana.


Freysteinn Sigurðsson

Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum: Hugsandi Menn