Kort Vefur

Þjórsá - Hvammsvirkjun




Ferðamenn sem leggja leið sína frá suðvesturhorninu og hyggjast fara inn í Þjórsárdal, um Sprengisand, upp í Veiðivötn eða í Landmannalaugar aka lengi vel um þéttbýl landbúnaðarhéruð í lágsveitum Suðurlands, Ölfus, Flóa og Skeið. Þegar komið er að bænum Minna-Núpi í Gnúpverjahreppi er farið upp brekku og skyndilega opnast nýtt og allt öðruvísi landslag. Beint af augum trónir Hekla, norðar eru Hagafjall og Búrfell en Skarðsfjall sunnar, fjær sést kraðak tinda og fjalla á Landmannaafrétti og í fjarska glampar á Tindfjallajökul og Eyjafjallajökul. Næst liðast Þjórsá og í henni  miðri er allstór kjarri vaxin eyja. Þarna er nú fyrirhugað að virkja og steypa stíflu þvert yfir ána rétt ofan við eyjuna. Lónið næði upp undir Gaukshöfða, um 6 km leið frá stíflunni. Hluti af ræktarlandi jarðarinnar Haga færi undir lónið. Neðan stíflu yrði farvegur Þjórsár vatnslítill eða þurr á um 2 km kafla.

Eyjan neðan við stíflustæðið er Minnanúpshólmi eða Viðey. Viðeyjarnafnið er dregið af því að hún er þakin um 2ja metra háu birkikjarri. Þetta er eini náttúrulegi birkiskógurinn sem þarna sést. Ofar við Þjórsá er birki á nokkrum stöðum en sáralítið neðar þar sem tekur við þéttbýlt landbúnaðarhérað. Straumþung og djúp áin hefur hlíft eyjunni við ágangi manna og búfjár. Hún stendur nú eftir sem einstæður vitnisburður um gróðurfar fyrr á öldum eða við landnám. Verndargildi eyjarinnar er mikið en ef af virkjun yrði, nyti hún ekki lengur friðunar af ánni. Framburður Þjórsár myndi fljótlega fylla grunnt lónið og því er gert ráð fyrir að dæla honum upp og koma fyrir á nokkrum stöðum við ána. Áætlað afl virkjunarinnar er nærri 80 MW.


Þóra Ellen Þórhallsdóttir

Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum: Hugsandi Menn