Kort Vefur

Þjórsá - Norðlingaölduveita




Deilt hefur verið um virkjun Þjórsár og veitur í Þjórsárverum frá því um 1970. Þá voru uppi áform um 200 km² miðlunarlón sem sett hefði nánast allt gróðurlendi veranna á kaf og náð næstum upp að Hofsjökli. Þetta fyrirhugaða manngerða vatn var nefnt Isle Lake Storage af hugmyndasmiðunum eftir eyjum sem staðið hefðu upp úr því og hefði á íslensku kallast Eyjavatn. Friðun Þjórsárvera hefur allar götur síðan gengið eins og rauður þráður gegnum íslenska náttúruverndarbaráttu og sprottið upp með reglulegu millibili þegar ný virkjunaráform hafa litið dagsins ljós. Náttúruverndarráð samþykkti Kvíslaveitu um 1980 og þar með að allar kvíslir sem í Þjórsá renna úr austri og austasta kvísl Þjórsár sjálfrar yrðu teknar en jafnframt náðist samstaða um að friðlýsa verin næst Þjórsá að austan (Eyvindarver og Þúfuver) og stóru verin vestan ár. Um 1998 kom í ljós að Landsvirkjun hafði, án vitundar Náttúruverndarráðs, undirbúið veitu meginkvíslar Þjórsár sjálfrar  með því að taka ána rétt þar sem hún rennur inn í Þjórsárver og beina henni í skurði til Kvíslaveitu. Þetta olli hörðum viðbrögðum. Síðasta útfærslan (kennd við Jón Kristjánsson settan umhverfisráðherra) fólst í fremur litlu lóni neðst í Þjórsárverum en sú útfærsla gerði líka ráð fyrir tveimur lónum efst í Þjórsárverum austur af Arnarfelli hinu mikla, og að mestallt vatn sem rennur inn í verin nyrst yrði tekið og veitt í  Kvíslavatn. Farvegur Þjórsár hefði þar með orðið nær þurr á 8 km kafla efst í Þjórsárverum og vatnslítill á 4 km kafla til viðbótar.

Umhverfi og vatnsbúskap Þjórsár hefur nú verið raskað að austanverðu næstum upp að miðju landsins. Sumir farvegir eru þurrir eða vatnslitlir en nýir gerðir með skurðum og stíflum. Jökulvatni var veitt í Þórisvatn sem áður var tært hálendisvatn og fjölmörg lón búin til, hið stærsta (Kvíslavatn) er 7. stærsta vatn landsins. Vatnsmagn í Þjórsá þar sem hún rennur út úr Þjórsárverum er nú ekki nema ríflega helmingur af því sem áður var og fossarnir fyrir neðan hafa rýrnað sem því nemur. Umhverfið vestan ár er óraskað þar til kemur að Sultartangalóni og meginhluti Þjórsárvera enn heill.


Þóra Ellen Þórhalssdóttir

Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum: Hugsandi Menn