Kort Vefur

Þjórsá - Urriðafossvirkjun




Á þjóðvegi 1 á Suðurlandi er farið yfir nýja brú á Þjórsá rétt sunnan við eldri brú. Ef af Urriðafossvirkjun verður, kemur stífla skammt ofan við gömlu brúna og ofan hennar lón sem yrði um þriðjungur Mývatns að flatarmáli. Við stífluna yrði vatnið leitt til austurs að stöðvarhúsi á bakka Þjórsár en kæmi aftur inn í farveginn um 4 km neðar. Urriðafoss, nú vatnsmesti foss landsins, yrði því vatnslítill. Virkjunin myndi hafa veruleg áhrif á fiskgengd, einkum lax. Í Þjórsá veiðast um 5% af öllum laxi á landinu. Árið 2005 veiddust í net tæplega 4.000 laxar, meira en helmingur allra netveiddra laxa. Mögulegt er að opna fyrir göngu lax framhjá stíflunni með laxastiga en samkvæmt matsskýrslu yrði miklu erfiðara að koma í veg fyrir að gönguseiði farist í inntakinu á leið til sjávar. Öll þessi þrjú lón eru grunn og gert er ráð fyrir að dæla þurfi burt seti úr Urriðafosslóni á u.þ.b. 5 ára fresti. Tún og beitilönd nokkurra jarða verða fyrir áhrifum af virkjuninni. Áætlað afl virkjunarinnar er um 120 MW.


Þóra Ellen Þórhallsdóttir

Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum: Hugsandi Menn